06.12.2006 20:14:39 / isakhn
Korkur hefur verið settur í þessa annars ágætu
síðu!
Ætla að flytja mig yfir á blogspot.com
Sjá hvort að það fær mig til að vera duglegri að
skrifa
Nær eingöngu gert fyrir þá vini sem halda sig
erlendis
að halda þessum skrifum áfram
mr. nguyen
www.isakhnguyen.blogspot.com
»
29.11.2006 15:44:11 / isakhn
Jelló..
Hef nákv. ekkert að segja nema að það er skuggalega stutt í
jólin. Fór allt í einu að spá í þessu hvað tíminn líður ógeðslega
hratt. Man þegar maður gat varla beðið eftir að fá bílpróf þá leið
tíminn ógeðslega hægt. Samt eiginlega frá því hefur hann liðið á
einhverjum ofboðslegum hraða... Frekar skuggalegt.
Eitt svona á heimspekilegu nótunum í lokin..
-Hvort kom á undan hænan eða eggið?
»
26.11.2006 11:36:46 / isakhn
Blogg.. hvað er það??
Já gott fólk, hvað haldiði ég ákvað að henda inn nokkrum línum.
Orðið svoldið langt síðan að ég bloggaði..en hvað um það.
Það sem er að frétta:
Ég var að klára prófin.. fór í 4 próf. Gekk vel í 3 og ekki svo
vel í einu prófi. Alveg ógurlega feginn að vera búinn. Það sem er
eftir núna af skólanum eru 3 vikur af tölvunarfræði og svo jólafrí
15.des 2006. Sem er bara nokkuð gott ef ég skal segja..
Lítið búið að vera um djamm upp á síðkastið. Reyndar djamm sl.
föstud. svona eftir prófin. En annað ekki. Endilega ef þið eruð að
fara að skemmta ykkur þá er ég game..
Footloose er ennþá í gangi..þó að núna fari að draga úr
sýningum. Þannig að ef þið hafið ekki séð það þá er þetta góður
tími til þess að fara og sjá sýninguna!!!
Annas er ekkert meira að segja..
kv. ísak óbloggari
»
26.09.2006 22:58:55 / isakhn
Jelló.. rétt að tjekka inn.. Ekki mikið að segja frá. Var í prófi í
fjármál fyrirtækja í gær.. fékk 10

Svo er ég að fara norður í
viku að kenna dans. tek líklega bara bækurnar með mér.. og læri af
mér rassgatið í frið og spekt þarna á einskismannsstað. En annas er
vísó næsta föstud. ég missi af henni því ég er að fara að sýna
fusslusse!! ææ ekki mikið að segja.. ég er einginlega bara að eyða
tímanum.. þangað til að ég hef eitthvað merkilegt að segja.. ísak
»
03.09.2006 15:25:50 / isakhn
Sunnudagurinn 3 september.
Langt síðan að ég hef farið í bæinn edrú.. en sú varð reyndin í
gær. Byrjaði á því að skutla Reyni og systur hans upp í Mosfellsbæ
á Sálarball sem var haldið í ..humm refusun trevis stað(man ekki
hvað hann heitir) og svo kíkti ég aðeins í bæinn að hitta Max.
Vorum á Vegamótum sem var alveg þokkalegt og spjölluðum við
heillengi og voða fínt eitthvað.. Skutlaði svo Nönu og vinkonum í
bæinn og svo var haldið heim... held að klukkan hafi verið að ganga
4 þegar ég kom heim.SPES.. Mjög langt síðan að ég hef verið
bílstjórinn..
Allavegana þá er ekkert meira um það að segja nema að ég þarf að
fara að læra.. það er fyrsta próf vetrarins á morgun í fjármál
fyrirtækja þannig að maður verður að undirbúa sig og setja sig í
stellingar.
Annas enda ég þetta á Sunnudagsmyndinni.. Njótið vel.. Dorgull í
hafi

»
01.09.2006 14:40:59 / isakhn
já já gott fólk..
Þegar ég kom heim úr skólanum í dag.. blasti við mér furðuleg
sjón. Tveir svona amerískir kaggar fyrir framan húsið og menn í
svona bláum samfestingum með svona hermanna alpahúfur. Nett hissa
er held ég rétta lýsingin.
Málið er að við erum búin að vera í framkvæmdum á lóðinni okkar
og er verið að breyta alveg heilan helling.. eiginlega bara verið
að taka allt í gegn s.s búið að grafa allt sundur og saman. Það var
einmitt í gær þegar gröfumaðurinn var að grafa að þá kom í ljós
helvíti magnaður hlutur TUNDURDUFL já gott fólk TUNDURDUFL. Aftur
að mönnunum í bláu samfestingunum. Þetta voru sem sagt menn eða
réttara sagt sprengjusérfræðingar frá landhelgisgæslunni að athuga
hvort að það væri virkt og eitthvað mega mál. Lögreglan búin að
vera víst í heimsókn á undan þeim í morgun og greinilega mikið pat
þegar ég kom heim áðan.. En sem betur fer reddaðist þetta allt
saman og TUNDURDUFLIÐ er núna farið með sprengjusérfræðingunum.
Helvíti skuggalegt samt að spá í því að það er búið að vera
þarna í garðinum alla mína tíð. Frá þvi að ég fæddist og þangað til
núna.. 23 ár og líklega mikið lengur. Holy crap. Þetta náðist allt
á mynd og video þannig að þetta verður skemmtilegur sögubútur sem á
eftir að fylgja húsinu lengi.
Annas hef ég ekkert meira að segja nema að það er gaman í
skólanum, það er mikið að gera í skólanum og Footloose er ennþá í
FULL SWING þannig að láttu sjá þig í Borgarleikhúsinu laugard. 9
sept því þá er næsta sýning á Footloose og gestaleikarinn Jónsi (i
Svörtum fötum) verður þá.. þannig að láttu sjá þig
»
28.08.2006 14:43:15 / isakhn
"Fangavörður gripinn með fíkniefni í
fangelsi"
Þetta er ein fyrirsögnin á mogganum í dag. Þar stendur svona í
grófum dráttum að fangavörður hafi verið handtekinn fyrir að vera
með mikið magn fíkniefna á sér sem ætlað var
föngunum. Þar lýsir svo Valtýr Sigðursson forstjóri
fangelsismálastofnunnar yfir undrun sinni og ráðaleysi
stofnuninnar við þessum vágesti sem hefur herjað í meira magni
en áður á Litla Hrauni nú í sumar. Töluvert magn af fíkniefnum
hefur fundist í sumar inn á deildum fangelsins þar á meðal sprautur
og sterar.
Mér finnst þetta alveg fáranlegt að þeir skuli vera hissa
yfir því að fangavörður skuli vera viðriðinn þetta
vandamál. Því mikið er leitað á föngum sem fá dagsleyfi
og svo gestum sem koma á hraunið og einhversstaðar hljóta efnin að
koma frá. Ég er í raun alveg gáttaður á því
að fangelsið hafi ekki látið sér detta þennan
möguleika fyrr í hug. Kannski að þeir séu ennþá svo blindir og trúi
að svona lagað eigi sér ekki stað á litla sæta Íslandi eða
þeir hreinlega vilja ekki sjá það. Nú eða þeim sé svona skítsama um
fangana og hvort þeir komi betrum bætir út í samfélagið aftur
eða forhertari en þeir fóru inn. Mér finnst þetta lýsa fádæma
reynsluleysi og vanvita skap. Fangelsismálastofnun er gjörsamlega
með allt niðrum sig og alveg með kúkinn upp á bak..
»
26.08.2006 00:17:15 / isakhn
<img src="
">
<img src="
">
<img src="
">
»
22.08.2006 15:04:08 / isakhn
Já góðan og blessaðan.. HR byrjaður og allt að detta í námsgír.
Dagur 2 afstaðin og eru menn bara nett sáttir við að vera sestir
aftur á skólabekk. Helvíti fínt bara. Verð að segja ykkur frá
eðlisfræðikennaranum sem ég er með í dæmatímum. Lítill(svo sem
ekkert að því að vera það

greinilega einhver svona fittness gaur
nema hvað að buxurnar hans eru svona skemmtilega girtar alveg upp í
heila og yfir naflann og fínerí. Alveg kostulegt að sjá hann
kenna..svollis á hundraðinu að maður má varla klóra sér þá er maður
búinn að missa af einhverju ofsalega mikilvægu. Gaurinn fær alveg
topp einkunn 10 spes stig af 10 mögulegum. Allt saman frekar fyndið
eitthvað.. Svo er danskennslan að detta í gírinn aftur. Footloose
ennþá í gangi og hvet ég alla þá sem eiga eftir að sjá Footloose að
skella sér á Footloose hið allra fyrsta.. alger snilldarsýning sem
enginn ætti að láta fram hjá sér fara

Dorgull í hafi og spliff,
donk og gengja
»
08.08.2006 09:48:52 / isakhn
Góðan og margblessaðan..
Já þá er verslunarmannahelgin yfirstaðin.. Hvílík snilldar
helgi. Við fórum nokkur í bústaðinn í Biskupstungum.
GEstur,Eyrún,Andri,Sonja,Helga,Ósk,Elvar,Egill og ég.. Aldrei hefur
verið tjúttað meira á bústaðagólfinu...Takk fyrir góða helgi.
(Myndir komnar)
Svo er skólinn að byrja í kvöld.. Eða
undirbúningsnámskeiðið..
Allt að gerast..
Dude
»
23.07.2006 21:49:57 / isakhn
Sunnudagur..
-enginn þynnka þrátt fyrir drykkju föstud og laugard.
-Ekki mikill svefn
-óhollur matur
-sjónvarpsgláp
-Tölvuhangs
-syrenia(eða hvernig er það skrifað) gláp
-Þarf að vera eitthvað mikið að gerast næstu helgi til þess að
ég fari að drekka
-fallegt kvennfólk í bænum í gær
niðurstaða= djammhelgi 5 af 10
»
21.07.2006 18:20:51 / isakhn
»
10.07.2006 13:22:58 / isakhn
jæja þá er maður orðinn 23 ára... get ekki sagt að það sé mikil
breyting frá því að vera 22 ára nema þetta 3 er komið í staðin
fyrir 2. Samt er þetta pínu skuggalegt.. ég er nær 25 en 20 vá.. En
hvað um það.. átti fínan afmælisdag. 23ára maðurinn kveður að sinni
»
03.07.2006 20:48:46 / isakhn
Frumsýningin á Footloose gekk rosalega vel. Alveg troðfullt út úr
dyrum og mikið fjör. Núna er smá hvíld fram á fimmtudag þá heldur
þetta áfram. Ekki mikið meira um það að segja nema að drífa sig á
footloose og tjekka á sýningunni!! kv. ísak
»
21.06.2006 16:31:02 / isakhn
Já.. ég er allur að koma til af veikindunum. Sem er mér mikill
hressingsbætir..Hver vill koma að djamma um næstu helgi..
djókurinn. Ætla mér ekki að brjóta djamm fríið mitt alveg
strax.
Footloose er að koma til. Búin nú þegar að taka 2rennsli og það
3 í kvöld. Svo verða fyrstu áhorfendur á general á laugard. Mikill
spenningur í öllum og tilhlökkun í fólki að byrja að sýna fyrir
áhorfendum.
Annars hef ég lítið að segja.. nema "Í kvöld verðum við öll
lús,Footloose"
-Ísak
»
Síður:
1 2